Urðunarstaður óskast
Sorpstöð Suðurlands bs. óskar eftir landi undir urðunarstað til kaups eða leigu. Æskileg staðsetning er á svæðinu frá Hellisheiði í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Æskilegt er að landið sé vel staðsett gagnvart samgöngum á landi og dreifikerfi raforku, en fjarri vatnsverndar- og útivistarsvæðum. Lágmarksstærð lands er 30 ha. Á staðnum yrði tekið við almennum úrgangi til urðunar, þó ekki lífrænum úrgangi. Áætlaður rekstrartími er 30 ár en leigutími að lágmarki 60 ár ef um leigu yrði að ræða.
Áhugasamir hafi samband við Stefán Gíslason hjá Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. í síma 862-0538 eða á stefan@umis.is í síðasta lagi fimmtudaginn 20. desember nk. Hann veitir einnig allar nánari upplýsingar.